Steinhöfði 2-4

Vandaðar og bjartar íbúðir frammi á hamrinum í nýju hverfi Borgarhöfða. Húsin munu verða kennileiti hverfisins og íbúar munu njóta einstaks útsýnis yfir borgina.

ÍBÚÐIR

Nýtt nútímalegt borgarhverfi í miðri Reykjavík með öllu sem þarf fyrir lífið eins og þú vilt hafa það

Á Borgarhöfða verða nýjar verslanir, veitingar, menning og mannlíf í göngufæri. Hverfið verður fjölskylduvænt og grænt með pláss fyrir bíla í kjöllurunum. Greitt aðgengi er að stofnbrautum og Strætó, og bráðum Borgarlína, gefur möguleika á bílléttum lífsstíl.

Frábær hönnun

Vel var hugað að öllum þáttum í hönnuninni og Lumix sá um alla ljósa- og rafmagnshönnun. Þá sá Mirra um alla hljóðhönnun og það eru þykkar plötur í húsinu sem uppfylla allar kröfur.

Í hverri íbúð er sjálfstætt loftræstikerfi sem stuðlar að betra heilnæmi íverurýmanna. Þá er hiti í gólfum í stórum hluta íbúðanna.

Það er Sérverk sem byggir húsið og hefur fyrirtækið áratuga reynslu sem verktaki.

Hönnun

Nýtt íbúahverfi

Ártúnshöfðinn er að fara í gegnum mikla umbreytingu. Hverfið er að þróast úr iðnaðarhverfi í glæsilegt íbúðahverfi með einstaklega góðum almenningssamgöngum, nýjum skólum og menningarmiðstöð. Þar er stutt í náttúruna og gott kerfi göngu- og hjólastíga.

Jafnhliða íbúðauppbyggingu mun verslun og þjónusta aukast og stefnt að byggingu bæði leikskóla og grunnskóla í nágrenninu.

Skoða íbúðir

Veðursæld

Veðurfar hér er mildara þar sem svæðið er skjólgott og verndað fyrir norðan- og suðaustanáttum. Inngarðurinn snýr í vestur mót síðdegis- og kvöldsólinni en hann er jafnframt einkar skjólsæll.

Umhverfi

Við Borgarlínu og stofnbrautir

Stefnt er að því að Borgarlínan gangi sunnan megin við húsið og nærri verður aðalstoppistöð hennar. Þá eru stofnbrautirnar Árúnsbrekka / Miklabraut og Sæbraut / Reykjanesbraut steinsnar frá. Borgarhöfðinn mun verða lifandi hverfi og er hægt að skoða kynningarvefinn hér:

Skoðaðu hverfið

Gæði í hönnun

Vel er lagt í alla hönnun og hefur hver íbúð sitt eigið loftræstikerfi sem stuðlar að betri loftgæðum í öllum rýmum íbúðarinnar. Þá er vel hugað að hljóðhönnun ásamt ljósahönnun.

Inngarðurinn nýtur kvöldsólarinnar og er einkar skjólgóður þar sem hægt er að njóta útiveru á fallegum sumarkvöldum.

Steinhöfði 2-4

Húsið sem stendur við Borgarlínuna og á brún hamarsins mun vera andlit hverfisins, kennileiti fyrir hið nýja hverfi á Ártúnshöfða.

Sérverk byggir húsin og hefur fyrirtækið byggt fjölbýlishús í áratugi og verið í fararbroddi í byggingu fjölbýlishúsa.