Umhverfi

Eirhöfði er nærri einni af helstu perlum Reykjavíkur, Elliðadalnum. Þar er gjarnan einmuna blíða og fallegt umhverfi með hjóla- og göngustígum sem ganga alla leið upp að Elliðavatni og til Heiðmerkur.

Borgarlínan

Borgarlína mun ganga upp með húsinu og verður Krossamýrartorg einkar nærri. Þar verður ein af aðalstoppistöðvum Borgarlínunnar ásamt menningarhúsi og mikilli uppbyggingu í verslun og þjónustu.

Hverfi í mótun

Borgarhöfðinn er að taka miklum breytingum og mun verða eitt af þéttustu hverfum borgarinnar. Samt sem áður er lagt mikið upp úr grænum svæðum og að auðvelt verði að komast út í náttúruna.

Nærri stofnbrautum

Húsin eru staðsett við Ártúnsbrekkuna og þaðan er steinsnar frá Miklubraut og Sæbraut. Einnig er stutt að leggja í ferðalag, hvort sem er norður í land eða austur fyrir fjall.



Skólar og leikskólar í hverfinu

Hér sést hvar er fyrirhugað að byggja leikskóla og grunnskóla í hverfinu.

Geirsnefið, fallegt útivistarsvæði

Geirsnefið er fyrir framan bygginguna og þar stundar fólk útivist og viðrar hundana sína. Þá er Esjan norðan megin við hverfið og veitir gott skjól fyrir norðanáttinni.